Það var mikil gleði og gaman á Litlu-jólum Grunnskólans og Tónskólans á Hólmavík í dag. Þar stigu langflestir nemendur skólans á svið og léku og sungu af hjartans list fyrir fjölmarga áhorfendur sem viðstaddir voru. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum með myndavélina og tók myndir af flestum atriðum yngri barnanna. Ekki gafst hins vegar svigrúm til að mynda atriði 8.-10. bekkjar, því þeir krakkar fengu fjölmarga fullorðna til liðs við sig í atriðinu sínu og fjölmennt var á sviðinu, fleiri en 50 manns. Fréttaritarinn var í þeim hópi og því vitlausu megin við myndavélina.
Litlu jólin á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson