Mikið fjör var á Litlu-jólum Grunnskólans á Hólmavík sem haldin voru í Félagsheimilinu. Hver bekkur var að venju búinn að æfa atriði fyrir hátíðina og sýndu þau hvert af öðru við mikinn fögnuð áhorfenda.
Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is – Jón Jónsson – var að sjálfsögðu á staðnum og tók myndir af herlegheitunum.
Yfir 40 ára samanlögð reynsla af stjórnun á Litlu-jólum á Hólmavík og víðar – Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir kennari og Victor Örn Victorsson skólastjóri.
1. og 2. bekkur syngja jólalög.
Söngur hjá 2. bekk.
3. og 4. bekkur sýna helgileik.
Leikrit hjá 5. og 6. bekk – í jólahellinum.
7. bekkur sýndi leikrit úr skólastofunni.
8. bekkur færir jólagleðina í hús.
Kynnar kvöldsins, Vilhjálmur Jakob Jónsson og Sylvía Bjarkadóttir.
Frá jólaleikritinu Þegar Hafþór bjargaði jólunum hjá 9. og 10. bekk.
Victor Örn Victorsson skólastjóri.