Það var mikið um dýrðir á Góugleði á Hólmavík sem haldin var í gær. Hefð er fyrir því að hópur karla á svæðinu sjái um Góugleðina og sýni þar frumsamin skemmtiatriði, einskonar revíu, sem inniheldur grín og glens um náungann. Konurnar sjá hins vegar alfarið um árlegt þorrablót á Hólmavík. Strandamenn eru orðnir býsna góðu vanir, því maturinn frá Café Riis var að venju hin mesta snilld, skemmtiatriðin voru öldungis ágæt og það var mikið fjör á ballinu þar sem Stuðlabandið spilaði fyrir dansi. Mjög góð mæting var á Góugleðina. Ritstjóri strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum með myndavél og myndaði skemmtiatriðin, en lagði að venju vélina á hilluna þegar dansinn hófst.
Góugleði á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson