Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is lét sig ekki vanta á flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á þrettándanum frekar en fyrri daginn. Skotið var upp af hafnarsvæðinu að venju, en ljósmyndarinn var staddur á smábátabryggjunni. Þar sem myndasmiðurinn átti í hálfgerðu basli með að ná góðum skotum af flugeldaskothríðinni smellti hann líka myndum af bátunum við flotbryggjurnar og gefur afraksturinn að líta hér fyrir neðan.
Á þrettándanum – ljósm. Jón Jónsson