Það líður að jólum og fyrsti jólasveinninn kom til byggða í nótt. Fjölmargir Strandamenn eru búnir að skreyta hús sín að innan jafnt sem utan. Mikilvægur þáttur í því er að setja upp jólaljósin, sem lýsa mönnum í skammdeginu og gleðja geð. Jólin eru svo sannarlega ljósahátíð. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is fór um þorpið á Hólmavík og smellti myndum af nokkrum húsum sem jólaljósin setja aldeilis svip sinn á.
Jólaljósin á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson.