Á dögunum var fundur eigenda Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Þar hittust fulltrúar eigenda frá sveitarfélögum við Húnaflóa og ræddu um framtíð safnsins, möguleika og tækifæri. Lára Magnúsardóttir hjá fræðasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra kynnti einnig hugmyndir sínar. Byggðasafnið var stofnað árið 1967 og er því komið á fimmtugsaldurinn. Stolt safnsins er hákarlaskipið Ófeigur og þar er m.a. glæsileg sýning um hákarlaveiðar við Húnaflóa. Einnig er þar baðstofa eins og tíðkuðust í bændasamfélagi 19. aldar.
Fundurinn var haldinn að frumkvæði Héraðsnefndar Strandasýslu sem um þessar mundir fer yfir framtíð nefndarinnar og þau verkefni sem heyra undir hana.
Frá fundinum í Byggðasafninu – ljósm. Jón Jónsson