Hvítasunnan er runnin upp og fallegt veður á Ströndum. Fréttaritari fór með myndavélina í góða gönguferð í gærmorgun og smellti af myndum á Hólmavík og nágrenni. Ferðaþjónar voru að undirbúa sumarið, Hafþór að gera klárt í handverksbúðinni og vinnustofunni í Ráðaleysinu og Sigurður var að setja upp tjaldið fyrir Kaffi Galdur. Eitthvað var líka verið að bjástra á Café Riis. Tvö gömul hús á Hafnarbrautinni fá verðskuldað viðhald þessa dagana og verða örugglega bæjarprýði á eftir. Útsýnið yfir til Hólmavíkur frá fyrirhuguðu sumarbústaðasvæði í Skeljavíkinni var líka prýðilegt.
Hólmavík og Skeljavík – Ljósm. Jón Jónsson