Í dag var kveikt á nýjum GSM-sendi frá Vodafone við Bjarkalund í Reykhólasveit sem dregur 30 kílómetra. Sendinum var komið upp til bráðabirgða við Bjarkalund, en vonir standa til að varanlegur sendir verði á Hofstaðahálsi við Þorskafjörð og nái þá að miðla yfir stærra svæði. Uppsetning þessa sendis er hluti af uppbyggingu á GSM-sambandi á stofnvegum sem Fjarskiptasjóður stendur fyrir. Fram hefur komið hjá Árna Sigurpálssyni hótelhaldara á Bjarkalundi að skortur á GSM-sambandi hafi haft mjög neikvæð áhrif á gistinguna. Hann hefur hins vegar góða ástæðu til að fagna í dag, því nýverið fékk hann einnig ADSL-tengingu á svæðið. Þetta kemur fram á www.reykholar.is.
Árni kveikir á sendinum
Óskar sveitarstjóri, Þórarinn frá Vodafone og Árni hótelhaldari
Margir hafa fengið sér tertu af minna tilefni en þessu
Guðmundur á Grund tékkar á sambandinu
– Ljósm. Björn Samúelsson