Breskur frönskukennari og áhugamaður um fuglaskoðun, Colin Humphrey, heldur því fram að Steingrímsfjörður sé einn allra áhugaverðasti fuglaskoðunarstaður landsins og aðgengi að mögnuðu og fjölbreyttu fuglalífi einstaklega gott. Colin var á Ströndum í vikunni og gisti nokkra daga á tjaldsvæðinu á Hólmavík og segir að fuglalíf við fjörðinn sé ótrúlega fjölbreytt. Hann fékk lánað reiðhjól á Hólmavík og hjólaði m.a. í sund í Bjarnarfjörð í fyrradag og skrásetti allar fuglategundir sem hann sá á leiðinni. Hann segir þessa dagstund hafa verið stórkostlega og einn hápunktur sinn í fuglaskoðun. Daginn áður fékk hann far með Sigurði Atlasyni framkvæmdastjóra Strandagaldurs frá Hólmavík til að skoða Kotbýli kuklarans. Á leiðinni var mikið spjallað og skrafað um náttúruskoðun og Colin ákvað að skrá niður allar fuglategundir sem hann tæki eftir við fjörðinn og afhenda Strandagaldri. Hér að neðan er listi yfir fuglategundirnar sem Colin skrásetti.
Að sögn Sigurðar er það dýrmætt að fá áhugafólk um fuglaskoðun til að vera þátttakendur við þróun náttúruskoðunar á svæðinu, en unnið er að undirbúningi fyrir alhliða náttúruskoðunarverkefni við Steingrímsfjörð og því þarf að skrásetja sem mest af fugla-, sela- og hvalalífi við fjörðinn.
7. ágú | Staður: Staðardalur | |||
Fuglategund | Latínuheiti | Mynd | ||
Smyrill | Falco columbarius | Sjá mynd | ||
8. ágú | Staður: Hólmavík og í siglingu frá Hólmavík að Reykjanesi | |||
Fuglategund | Latínuheiti | Mynd | ||
Kjói | Stercorarius parasiticus | Sjá mynd | ||
Himbrimi | Gavia immer | Sjá mynd | ||
Hettumáfur | Larus ridibundus | Sjá mynd | ||
Kría | Sterna Paradisaea | Sjá mynd | ||
Heiðlóa | Pluvialis apricaria | Sjá mynd | ||
Stelkur | Tringa totanus | Sjá mynd | ||
Tjaldur | Haematopus ostralegus | Sjá mynd | ||
Spói | Numenius phaeopus | Sjá mynd | ||
Sandlóa | Charadrius hiaticula | Sjá mynd | ||
Sendlingur | Calidris maritima | Sjá mynd | ||
Maríuerla | Motacilla alba yarrelly | Sjá mynd | ||
Teista | Cepphus grylle | Sjá mynd | ||
Lundi | Fratercula arctica | Sjá mynd | ||
Æðarfugl | Somateria mollissima | Sjá mynd | ||
9. ágú | Staður: Norðan Hólmavíkur fyrir fjörð og að Bjarnarfjarðarhálsi | |||
Fuglategund | Latínuheiti | Mynd | ||
Kjói | Stercorarius parasiticus | Sjá mynd | ||
Hettumáfur | Larus ridibundus | Sjá mynd | ||
Sílamáfur | Larus fuscus | Sjá mynd | ||
Kría | Sterna paradisaea | Sjá mynd | ||
Stelkur | Tringa totanus | Sjá mynd | ||
Sandlóa | Charadrius hiaticula | Sjá mynd | ||
Lóuþræll | Calidris alpina | Sjá mynd | ||
Tjaldur | Haematopus ostralegus | Sjá mynd | ||
Spói | Numenius phaeopus | Sjá mynd | ||
Heiðlóa | Pluvialis apricaria | Sjá mynd | ||
Teista | Cepphus grylle | Sjá mynd | ||
Æðarfugl | Somateria mollissima | Sjá mynd | ||
Álft | Cygnus cygnus | Sjá mynd | ||
Grágæs | Anser anser | Sjá mynd | ||
Þúfutittlingur | Anthus pratensis | Sjá mynd | ||
Maríuerla | Motacilla alba yarrelly | Sjá mynd | ||
Toppönd | Mergus serrator | Sjá mynd | ||
Himbrimi | Gavia immer | Sjá mynd | ||
Lómur | Gavia stellata | Sjá mynd | ||
9. ágú | Staður: Bjarnarfjarðarháls við Selkollusund | |||
Fuglategund | Latínuheiti | Mynd | ||
Álft | Cygnus cygnus | Sjá mynd | ||
Himbrimi | Gavia immer | Sjá mynd | ||
Heiðlóa | Pluvialis apricaria | Sjá mynd | ||
Spói | Numenius phaeopus | Sjá mynd | ||
Stelkur | Tringa totanus | Sjá mynd | ||
Hrafn | Corvus corax | Sjá mynd | ||
Skógarþröstur | Turdus ilacus | Sjá mynd | ||
Þúfutittlingur | Anthus pratensis | Sjá mynd | ||
9. ágú | Staður: Bjarnarfirði að Kotbýli kuklarans | |||
Fuglategund | Latínuheiti | Mynd | ||
Kría | Sterna Paradisaea | Sjá mynd | ||
Heiðlóa | Pluvialis apricaria | Sjá mynd | ||
Spói | Numenius phaeopus | Sjá mynd | ||
Jaðrakan | Limosa limosa | Sjá mynd | ||
Stelkur | Tringa totanus | Sjá mynd | ||
Kjói | Stercorarius parasiticus | Sjá mynd | ||
Skógarþröstur | Turdus ilacus | Sjá mynd | ||
Þúfutittlingur | Anthus pratensis | Sjá mynd | ||
Rjúpa | Lagopus mutus | Sjá mynd |