Heilmikil ráðstefna um galdra og samfélag verður haldin dagana 1.-2. september næstkomandi á Laugarhóli í Bjarnarfirði. Ráðstefnan er haldin á vegum verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, en að því stendur fjöldi stofnanna á sviði fræða og rannsókna og er Strandagaldur ein af þeim. Bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni í Bjarnarfirði sem verður opin öllum sem áhuga hafa á efninu. Dagskráin er birt hér að neðan.
Ráðstefnan ,,Galdrar og samfélag” að Laugarhóli í Bjarnarfirði
Föstudagur 1. september 2006
13:00 Setning ráðstefnu í Galdrasafninu á Hólmavík.
a) Kynning á safninu > Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri
b) Kynning á svæðinu > Jón Jónsson, þjóðfræðingur
14:30 Haldið að Laugarhóli, gestir koma sér fyrir.
Fyrirlestrar:
16:00 Inngangur > Torfi H. Tulinius, Háskóli Ísland > Ráðstefnustjóri.
16:10 Neil Price, Universititet i Oslo > „The archaeology of magic in Viking Age Scandinavia.“
16:50 Helga Kress, Háskóla Íslands > „Óþarfar unnustur áttu.” Um samband karlmennsku, kvennafars og fjölkynngi í Íslendingasögum.
17:30 Sverrir Jakobsson, Háskóli Íslands > „Galdur og forspá í ríkisvaldslausu samfélagi.“
19:00 Matur
20:30 Heimsókn í Kotbýli kuklarans.
Laugardagur 2. september 2006
10:00 Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur > „Hvað er tröll nema það?“
10:40 Már Jónsson, Háskóla Íslands > „Ákvæði Jónsbókar um galdra: uppruni og áhrif.“
11:20 Kaffi
11:40 Stephen A. Mitchell, Harvard University > „The ‘pactum cum diabolo’ and Nordic Witchcraft.“
12:20 Rune Blix Hagen, Universitetet i Tromsø > „Shamanism, Sami magic and witch-trials in Arctic Norway during the 17th Century.“
13:00 Matur
14:00 Helgi Þorláksson, Háskóla Íslands > Uppsprettur brunnur alls djöfuls í þeirri sveit. Vestfjarðakjálkinn, galdramál og Brynjólfur biskup.
14:40 Dr. Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur > ,,Meingjörð eða góðgjörð – til hvers er galdur?”
15:20 Kaffi
15:40 Magnús Rafnsson, Strandagaldri > ,,Hvaða galdur? Ólík viðhorf alþýðu og yfirvalds.”
16:20 Samantekt og almennar umræður.
19:00 Hátíðarkvöldverður
22:00 Megas og Súkkat (Aðgangseyrir verður ca. 500-1000 kr.)
Sunnudagur 3. september 2006
Frjálst val:
10:00-15:00 Ferð í Djúpuvík og Trékyllisvík á slóðir Guðsgjafarþulu.
Skráning er á netinu, www.midaldir.is. Ekkert ráðstefnugjald er innheimt, en verð á gistingu og mat að Laugarhóli má sjá á skráningarblaði.
Nánari upplýsingar veita:
Magnús Rafnsson, arnlin@snerpa.is (451-3384)
Andrea S. Harðardóttir, andrea@snerpa.is (848-2068)
Að verkefninu Vestfirðir á miðöldum standa Hugvísindastofnun HÍ (Miðaldastofa), Senter for studier i vikingtid og nordisk middelalder í Osló, Fornleifastofnun Íslands, Strandagaldur, Náttúrustofa Vestfjarða, Byggðasafn Vestfjarða, Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti, Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Snjáfjallasetur, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða.
Markmið hópsins sem að verkefninu stendur, er að auka þekkingu á sögu Vestfjarða frá landnámi til 1800; að skoða sérstaklega samfélagsþróun með tilliti til náttúrufars, menningariðju, erlendra samskipta og í samhengi við almenna þróun á Íslandi. Auk þess er áhersla lögð á að styrkja og auðga menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu.
Markmið ráðstefnunnar eru m.a.:
– að skoða samspil galdra og samfélags fyrr á öldum, með sérstöku tilliti til galdramenningar sem þreifst á Vestfjörðum.
– að kanna hvað í umhverfi, menningu og atvinnuháttumVestfjarða ýtti undir galdratrú í vestfirsku samfélagi.
– að stefna saman fræðimönnum úr ýmsum áttum, innlendum og erlendum, til að ná fram þverfaglegu sjónarhorni á viðfangsefnið.
– að vera framlag til þeirra akademísku rannsókna á göldrum sem fræðimenn í Strandagaldri hafa unnið að á undanförnum árum.
– að styðja við bakið á menningartengdri ferðaþjónustu sem byggð hefur verið upp í Strandasýslu í tengslum við galdra og galdramál.