HM dagar á Café Riis halda áfram jafnhliða heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en þar eru sýndir beint allir leikir keppninnar á risaskjá. Góð mæting hefur verið á leikina, og að sjálfsögðu misjafnt eftir því hvaða lið etja kappi. Það ætti enginn Strandamaður né ferðamaður á svæðinu að þurfa að láta keppnina framhjá sér fara en nokkuð hefur verið um að ferðamenn hafi rekið inn nefið til að fylgjast með sínum liðum. Klukkan 16:00 hefst leikur Frakka og Svisslendinga sem verður eflaust spennandi fyrir marga að fylgjast með og þá ekki síður leikur Brasilíumanna og Króata sem verður sýndur beint á Café Riis klukkan 19:00, en Brasilíumenn hafa heimsmeistaratitilinn að verja í keppninni. Dagskrá HM næstu daga er að finna hér að neðan.
Næstu leikir | ||
13.jún | kl. 16:00 | Frakkland – Sviss |
13.jún | kl. 19:00 | Brasilía – Króatía |
14.jún | kl: 13:00 | Spánn – Úkraína |
14.jún | kl. 16:00 | Túnis – Saudi Arabía |
14.jún | kl. 19:00 | Þýskaland – Pólland |
15.jún | kl. 13:00 | Ekvador – Kosta Ríka |
15.jún | kl. 16:00 | England – Trinidad & Tobago |
15.jún | kl. 19:00 | Svíþjóð – Paraguay |