Þegar íbúaþróun er skoðuð eftir sveitarfélögum átta ár aftur í tímann kemur glöggt fram hversu mikið áfall fyrir byggðina sú þróun sem verið hefur í sveitarhreppunum norðan Stikuháls er. Hlutfallsleg fækkun á átta ára tímabili er mest í Broddaneshreppi þar sem fækkunin er 47% (úr 94 íbúum 1997 í 50 íbúa 2005) og í Árneshreppi þar sem fækkunin er 35%. Hvergi á Vestfjörðum sjást tölur um fækkun íbúa í líkingu við þessar. Í Hólmavíkurhreppi er fækkunin 17% á sama tíma og 13% í Kaldrananeshreppi. Bæjarhreppur í Hrútafirði heldur hins vegar sínu á þessum tíma og gott betur því fjölgunin er 9%. Bæjarhreppur er eina sveitarfélagið á Vestfjörðum þar sem íbúum fjölgar á þessu 8 ára tímabili.
Staða Bæjarhrepps er merkileg fyrir margra hluta sakir því í öllum nágrannasveitum fækkar verulega, hinum hreppunum á Ströndum, Reykhólahreppi þar sem hlutfallsleg fækkun á átta árum er tæp 24%, Saurbæjarhreppi þar sem fækkað hefur um 26%, Dalabyggð þar sem fækkunin er 13% og Húnaþingi vestra þar sem íbúum hefur fækkað um 12%.
|
30.jún.97 |
30.jún.01 |
30.jún.05 |
Breyting |
Hlutfallsleg |
Árneshreppur |
81 |
59 |
53 |
-28 |
35% |
Kaldrananeshreppur |
140 |
131 |
122 |
-18 |
13% |
Hólmavíkurhreppur |
553 |
490 |
459 |
-94 |
17% |
Broddaneshreppur |
94 |
77 |
50 |
-44 |
47% |
Bæjarhreppur |
103 |
100 |
112 |
9 |
9% |