Frétt Gríðarleg hálka by admin29/12/2004 Gríðarleg hálka myndaðist inn í Bæjarhreppi í morgun, eins og víðar á Ströndum, þegar hlákan fór að hafa áhrif. Mjög varasamt var að vera á ferðinni, því rok var og kviður. Um tíma fyrir hádegið var nánast ófært niður á Borðeyri þar til saltað var.