Hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman yfirlit um þróun launagreiðslna eftir sveitarfélögum fyrstu sex mánuði ársins 2005 samanborið við launagreiðslur sömu mánuði á síðasta ári. Fram kemur að verulegur munur er milli landshluta hve heildarlaunagreiðslur hafa hækkað mikið milli ára. Í sveitarfélögum á Vestfjarðakjálkanum og á Norðurlandi vestra hækka heildarlaunagreiðslur áberandi minnst milli ára eða milli 4 og 5%. Í sveitarfélögunum fimm á Ströndum hækka launagreiðslur að meðaltali um 7,69% milli ára, en samanburð milli allra sveitarfélaga á Ströndum er að sjá í töflu hér að neðan.
Sveitarfélag | % aukning launagreiðslna á Ströndum milli ára |
Bæjarhreppur | 15,16% |
Broddaneshreppur | 0,29% |
Hólmavíkurhreppur | 8,43% |
Kaldrananeshreppur | 1,58% |
Árneshreppur | 11,46% |
Sveitarfélög á Ströndum | 7,69% |
Austurland sker sig eðlilega töluvert úr sem helgast af hinum miklu virkjana- og stóriðjuframkvæmdum þar eystra. Höfuðborgarsvæðið án Reykjavíkur kemur þar næst með rúmlega 12% hækkun launagreiðslna milli ára. Reykjavík, Suðurnes, Vesturland, Norðurland eystra og Suðurland liggja þar næst með áþekka hækkun launagreiðslna eða frá tæpum 8% upp í tæplega 9,5%.