Leikfélag Hólmavíkur fór um helgina í frækna leikferð um Vestfirði. Leikritið Með táning í tölvunni var sýnt á Patriksfirði, í Bolungarvík og Súðavík og komu samtals um 130 manns að sjá leikritið. Ferðalagið tókst vel í alla staði og mikil gleði og glaumur ríkti í ferðinni sem um það bil 20 manns tóku þátt í. Allir skemmtu sér vel bæði leikendur, hjálparkokkar og áhorfendur. Lokasýning á leikritinu verður í Félagsheimilinu Árnesi í Trékyllisvík 16. júní klukkan 20:00. Myndir má finna á facebook síðu Leikfélags Hólmavíkur.
Einar Indriðason horfir skelfdur á súpudiskinn
Leikhópurinn leggur sig fyrir sýningu
Búið að stilla upp leikmyndinni í Súðavík
Textaæfing á Patreksfirði
Leikferð um Vestfirði – Ljósm. Jón Jónsson