Um síðustu helgi var þorrablót á Drangsnesi og var að þessu sinni með rómantísku ívafi, enda kom það upp á sjálfan Valentínusardaginn 14. febrúar. Fór skemmtunin vel fram, bæði skemmtidagskrá, matur og dansleikur á eftir þar sem Bjarni Ómar Haraldsson og Stefán Jónsson spiluðu. Árni Þór Baldursson í Odda mætti með myndavélina á þorrablótið og var að vanda duglegur við að smella myndum af mannskapnum.
Þorrablót á Drangsnesi – Ljósm. Árni í Odda