Þegar vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hóf göngu sína birtum við öðru hverju gamlar myndir til gamans og ætlum að taka upp þann sið að nýju. Hér er ein mynd úr safni Sauðfjárseturs á Ströndum. Hún er af ullarþvotti í gilinu á Einfætingsgili sennilega um 1950. Þetta er hálfgerð felumynd því á henni eru 3 manneskjur sem falla býsna vel inn í landslagið. Það er í fyrsta lagi Jón Sigmundsson á Gili sem er að ausa vatni í tunnu. Hann er hinn reffilegasti, með kaskeiti úr sólgleri sem Signý systir hans saumaði á hann. Þarna eru líka Ásdís Jónsdóttir ekki mjög gömul sem er heppilegt til að tímasetja myndina og situr í ullarbingnum og svo er Eddi að þvo í gilinu, en hann var annað hvort í sveit á Gili eða vinnumaður þar. Gaman væri að fá nákvæmar upplýsingar um hvað Eddi heitir (Eðvard).
Ljósmynd úr safni Sauðfjársetursins – líklega tekin af Signýju Sigmundsdóttur.