30/10/2024

Þjóðbrók og hhitt hyskið á galdraloftinu í sumar

Brúðuleikhúsið Dúkkukerran frumsýnir brúðuleikritið Þjóðbrók og hitt hyskið
föstudagskvöldið 10. júlí kl. 20:00 á Galdraloftinu í Galdrasafninu á
Hólmavík. Þetta er fjölskyldusýning og fjallar um þjóðsagnapersónur og
atburði á Ströndum. Sýningar verða á Galdraloftinu í sumar á fimmtudögum og
föstudögum, og eftir samkomulagi. Sýningin tekur um 50 mínútur. Miðapantanir
eru í síma 451 3525. Næstu sýningar eru eftirfarandi daga:

Föstudagur 10. júlí
– Frumsýning, kl. 20
Laugardagur 11. júlí – önnur sýning, kl. 20
Sunnudagur 12. júlí – þriðja sýning, kl.
20
Fimmtudagur 16. júlí – fjórða sýning, kl. 20
Föstudagur 17. júlí – fimmta sýning, kl. 20