Um síðustu helgi var skipulögð sjálfboðavinna í Félagsheimilinu á Hólmavík, þar sem málningarpenslar og rúllur voru á lofti, auk þess sem menn spörtluðu og pússuðu af miklum móð. Tæplega 30 manns mættu á laugardaginn, en ívið færri á sunnudegi og var mikið líf og fjör báða dagana. Anddyrið fékk allsherjar andlitslyftingu og voru allir veggir málaðir og einnig voru veggir í salnum málaðir og tvisvar þar sem þurfti. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is tók þátt í sjálfboðavinnunni á laugardaginn og smellti af myndum. Rétt er að taka fram að þó flestar myndirnar séu úr kaffitímanum er það ekki af því að menn hafi verið í kaffi mestallan tímann. Dugnaðurinn var bara svo mikill að flestar myndir sem teknar voru af fólki við vinnu voru hreyfðar.
Sjálfboðaliðar í Félagsheimilinu á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson og Ásdís Jónsdóttir