21/11/2024

Siglingar Ferjunnar Baldurs um Breiðafjörð

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga og fastanefnd sambandsins um samgöngumál hafa skorað á yfirvöld samgöngumála að tryggja áframhaldandi daglegar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð, milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Bent er á að ferjan Baldur hefur gegnt lykilhlutverki í að tryggja heilsárs samgöngur við sunnanverða Vestfirði í áratugi. Samhljóða áskoranir hafa verið samþykktar af sveitarfélögum víða á Vestfjörðum. Í áskorun Fjórðungssambandsins sem er dagsett 12. október segir ennfremur: 

"Ætlun samgönguyfirvalda hefur verið að draga úr stuðningi við siglingar ferjunnar þegar lyki framkvæmdum á Vestfjarðavegi 60, milli Flókalundar og Bjarkalundar. Framkvæmdum á Vestfjarðavegi 60 hefur hins vegar verið frestað margsinnis, nú síðast vegna efnahagsástandsins, þar sem innistæður á vegaáætlun voru afskrifaðar vegna hrunsins í þjóðfélaginu. Horft var fram til að uppbygging Vestfjarðarvegar yrði að mestu lokið um áramótin 2010-2011, ljóst er að því markmiði verður langt í frá náð. Þá er einnig til skoðunar að skerðing á vetrarþjónustu á Vestfjarðavegi 60.

Því má öllum ljóst vera að daglegar ferðir Ferjunnar Baldurs eru samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum lífsnauðsynlega og samkeppnisstaða svæðisins verður hér stórlega skekkt gagnvart öðrum landshlutum. Má í því samhengi nefna, að fiskútflutningsfyrirtæki hafa á síðustu árum byggt upp verðmæt viðskiptasambönd sem nú er hætta á að fari forgörðum ef daglegar ferjusiglingar verða ekki tryggðar. Hefði slíkt bein áhrif til hins verra, á íbúaþróun og aðra atvinnustarfsemi. Þá gegnir Ferjan Baldur einnig lykilhlutverki í samgöngum vegna reksturs framhaldsdeildar á Patreksfirði undir stjórn Framhaldsskóla Snæfellinga í Grundarfirði.

Það er því skýlaus krafa stjórnar og samgöngunefndar Fjórðungssambands Vestfirðina, að daglegar ferjusiglingar yfir Breiðarfjörð verði  tryggðar a.m.k.  til næstu tveggja ára og Vegagerðinni verði falið að ganga til samninga þar um."