Litlu-jólin hjá Grunnskóla Hólmavíkur heppnuðust aldeilis bærilega, en þau voru haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík í dag. Þar stigu langflestir nemendur skólans á svið og sýndu leikþætti eða sungu og spiluðu. Eins og venjan er sýndi einn bekkurinn helgileik og var það 4. bekkur sem sá um helgileikinn að þessu sinni. Eftir Litlu-jólin var síðan jólaball. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum með myndavélina.
Litlu-jólin á Hólmavík – Ljósm. Jón Jónsson