Jólaljósin setja að venju mikinn svip á Strandir yfir veturinn. Elstu krakkarnir á leikskólanum Lækjarbrekku á Hólmavík hafa fyrir venju að velja best skreytta húsið á Hólmavík ár hvert og fara í því skyni sérstakan jólaseríurúnt og mæta svo aftur til að afhenda verðlaun. Að þessu sinni varð Hafnarbraut 21 hjá Jóni Vilhjálmssyni og Svanhildi Jónsdóttir fyrir valinu. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is fór í gönguferð um Hólmavík í góða veðrinu í gærkveldi og smellti af mynd af jólatréinu mikla á Hafnarbraut og fleiri húsum sem ljómuðu í myrkrinu.
Alltaf mikið skreytt á Vitabrautinni
Arion banki á Hólmavík hefur ekki verið merktur enn sem slíkur, vonandi fá hin fyrirtækjamerkin líka að halda sér áfram
Hólmavíkurkirkja er alltaf glæsileg, sama frá hvaða sjónarhorni er myndað
Verðlaunahúsið í fyrra hjá Daníel og Maríu
Jólaljósin á Hafnarbraut 21 – ljósm. Jón Jónsson
Fleiri myndir af jólaljósum á Hólmavík er að finna á vef Ingimundar Pálssonar.