Erlendir ferðamenn á húsbílum hafa verið nokkuð áberandi á Hólmavík
undanfarnar tvær vikur og gista gjarnan frekar í bílum sínum á opnum svæðum í
kauptúninu en á tjaldsvæðinu þar sem er að finna fyrirmyndaraðstöðu. Undanfarnar
nætur hafa undantekningarlaust verið húsbílar hér og þar í þorpinu. Liðna nótt
gisti enginn á tjaldsvæðinu en aftur á móti var að finna húsbíla nánast í
bakgörðum íbúanna. Það hefur verið vinsælt meðal ferðamannanna að leggja við
höfnina og við Galdrasýninguna í stað þess að nýta þá aðstöðu sem er fyrir
hendi. Tíðindamaður strandir.saudfjarsetur.is smellti myndum af tjaldsvæðinu og víðar um þorpið í gærkvöldi.

Slæm nýting á tjaldsvæðinu á Hólmavík
Næturgestir hreiðra um sig víðast hvar annarsstaðar