30/10/2024

Framhald verður á fornleifarannsókn

Síðastliðið haust var hafist handa við fornleifarannsóknir á Strákatanga í Hveravík við norðanverðan Steingrímsfjörð. Þá voru gafnir könnunarskurðir til að kanna búsetu baskneskra hvalveiðimanna á Ströndum. Nú hefur Fornleifasjóður styrkt áframhaldandi vinnu við verkefnið, en Baskarannsóknin var ein af sjö fornleifarannsóknum sem fengu styrki í vikunni. Fékkst 600 þúsund til framhaldsrannsóknar, en unnið er að fjármögnun víðar til að hægt sé að vinna áfram að verkefninu næstu ár.

Rannsóknin er samvinnuverkefni Strandagaldurs, Náttúrustofu Vestfjarða og fleiri aðila og kallast Hvalveiðar Baska á Íslandi á 17. öld. Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur hjá Náttúrustofunni stjórnar verkinu ásamt Magnúsi Rafnssyni sagnfræðingi á Bakka í Bjarnarfirði.

Rannsóknin á hvalveiðum Baska við Ísland hefur vakið mikla eftirtekt bæði hér á landi og erlendis og margar fyrirspurnir borist vegna þeirra, en minjarnar á Strákatanga hafa alþjóðlegt gildi þar sem mannvirkin voru reist af erlendum mönnum og eru af sömu gerð og hvalveiðistöðvarnar í Red Bay við Nýfundnaland og annars staðar á Norður-Atlantshafssvæðinu. Rannsóknir á minjum eftir erlenda hvalveiðimenn eru taldar auka skilning á upphafi hvalveiða á N-Atlantshafi og útskýra hvaða áhrif vera þessara erlendu manna hafði á íslenskt samfélag.

Af öðrum verkefnum sem styrk fengu að þessu sinni úr Fornleifasjóði má nefna uppgröft í Vatnsfirði í Djúp sem fær áframhaldandi styrk, en hann er unninn á vegum verkefnisins Vestfirðir á miðöldum. Strandagaldur er einnig aðili að því verkefni.