Aðeins barst eitt tilboð í endurlögn Drangsnesvegar (645) um Selströnd í norðanverðum Steingrímsfirði, frá Strandaveg að heimreiðinni að Kleifum á Reykjarnesi. Tilboð voru opnuð í dag og aðeins barst tilboð frá KNH að upphæð 59,8 milljónir sem er örlítið hærra en kostnaðaráætlun. Vegarkaflinn er alls 7,58 km og á vegagerðinni að vera að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2007, en útlögn klæðningar skal vera lokið 1. september. Eftir að þessu verkefni lýkur verður enn eftir um það bil 6,7 kílómetra vegagerð milli Drangsness og Hólmavíkur.
Helstu magntölur eru:
Fylling og fláafleygar | 4800 | m3 |
Efnisvinnsla | 17500 | m3 |
Neðra burðarlag | 6000 | m3 |
Efra burðarlag | 11300 | m3 |
Klæðing | 49500 | m2 |
Frágangur fláa | 61200 | m3 |
Rofvarnir | 3000 | m3 |
Tilboð og áætlun:
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik |
K N H ehf. | 59.767.500 | 101,1 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 59.127.000 | 100,0 | -641 |