Á aðalfundi Leikfélags Hólmavíkur á dögunum var kosin ný stjórn og rætt um verkefni vetrarins. Ætlunin er að ráðast í samstarfsverkefni með Grunnskólanum og Tónskólanum á Hólmavík í vetur og til að undirbúa það völdu nemendur í skólanum þrjú leikrit og æfðu búta úr þeim undir stjórn Esterar Aspar Valdimarsdóttur tómstundafulltrúa Strandabyggðar og leiklistarkennara. Þessir bútar úr leikritunum Benedikt búálfur, Ronja ræningjadóttir og Skilaboðaskjóðunni voru svo sýndir á leikæfingu í síðustu viku og kosið um framhaldið af viðstöddum.
Skilaboðaskjóðan sem byggir á bók Þorvaldar Þorsteinssonar varð þar fyrir valinu sem verkefni vetrarins og meðfylgjandi myndir eru frá sýningu nemenda í leiklistarvali á leikritsbútunum.
Í nýrri stjórn Leikfélagsins eru Einar Indriðason formaður, Salbjörg Engilbertsdóttir gjaldkeri og Ester Sigfúsdóttir ritari. Einar og Ester koma ný inn í stjórn, þó þau hafi reyndar bæði setið í stjórn félagsins áður, Einar var t.d. formaður árin 1999-2004. Salbjörg Engilbertsdóttir er gjaldkeri félagsins 16. starfsárið í röð.
Rætt var um fleiri hugsanleg verkefni vetrarins, svo sem leikhússport og stutt jólaleikrit og fleiri hugmyndir komu fram.
Undirbúningur fyrir val á verkefni vetrarins í samvinnu Grunnskólans, Tónskólans og Leikfélags Hólmavíkur – ljósm. Jón Jónsson.