Það var svalt á Hólmavík í dag, en þó fallegt veður, sólin skein á húsin og sólstafir stungu sér niður á smábátahöfnina. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is smellti af nokkrum myndum og að þessu sinni beindi hann linsunni ekki að fólkinu í þorpinu, frekar að húsum og hafnarsvæðinu. Kindur á skerjum við Kirkjuból slæddust líka inn á eina myndina. Rjúpur gera sig nú heimakomnar í þorpinu á Hólmavík, vita sem er að óheimilt er að veiða þær í þéttbýlinu og láta ófriðlega á húsþökum og í görðum. Þær eru orðnar hvítar að mestu leyti.
Svipmyndir af Ströndum – ljósm. Jón Jónsson