Áttu barn í Grunnskólanum á Hólmavík? Þá máttu ekki missa af þessu! Fimmtudaginn 27. október kl. 18:00 verður aðalfundurForeldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Auk þess að kjósa nýja stjórn verður fjallað um hvernig efla megi samstarf foreldra, barna og skóla. Á dagskrá er skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna, pizzur í boði Foreldrafélagsins og almenn fundarstörf.
Dagskrá fundarins:
Kl. 18:00-18.30
Krísusögur: Arnar S. Jónsson, tómstundafulltrúi Strandabyggðar flytur fræðandi og skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna.
Kl. 18:30-19:00
Matarhlé. Pizzur í boði Foreldrafélagsins, ókeypis fyrir fundargesti.
Kl. 19:00 – 20:00
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans við Hólmavík.
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta starfsárs
3. Kosning stjórnar, bekkjarfulltrúa og skoðunarmanna
4. Stutt umfjöllun um samráðsfundi, bekkjarkvöld og skólaárið 2011 – 2012
5. Önnur mál