Árvissir jólatónleikar Tónskólans á Hólmavík á þriðjudags- og miðvikudagskvöld í Hólmavíkurkirkju gengu ljómandi vel. Þar komu flestir nemendur skólans fram og sýndu hvað þeir höfðu lært í vetur.
Skemmtilegt var að fylgjast með mörgum flytjendum sem ljómuðu af einbeitingu og áhuga. Hér að neðan fylgja nokkrar myndir frá tónleikunum, teknar af Kristjáni Sigurðssyni.