22/11/2024

Helstu verkefni lögreglunnar

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum um verkefni í vikunni sem var að líða kemur fram að umferðarátaki lögreglunnar var haldið áfram og mörg ökutæki stöðvuð og rætt við ökumenn. Nokkrir aðilar voru kærðir fyrir að tala í síma við akstur og vill lögregla benda ökumönnum á þá hættu sem er því samfara að tala í síma og aka um leið og ítrekar við ökumenn að nota viðeigandi búnað. Nokkrir ökumenn voru áminntir fyrir ljósabúnað og þá vill lögregla benda gangandi vegfarendum á að nota endurskinsmerki.

Fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæminu. Flutningabíll valt sunnan við Hólmavík, ekki slys á fólki. Þá fór fólksbíll út af veginum á Kirkjubólshlíð og hafnaði niður í fjöru. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir. Tvö önnur minni háttar óhöpp urðu. Lögregla vill benda vegfarendum á að akstursskilyrði er mjög misjöfn og breytast hratt í umhleypingum þeim sem núna eru.

Lögregla vill benda foreldrum og forráðamönnum barna á að nota þann öryggisbúnað sem þarf fyrir ung börn í bílum, en talsvert er um að þegar komið er með börn á leikskólana að börnin séu laus í bílnunum.