Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík hefur borist höfðingleg gjöf frá Kvenfélaginu Glæðum á Hólmavík. Konur úr kvenfélaginu afhentu sveitinni sjálfvirkt hjartastuðtæki að gjöf í kaffisamsæti í húsi sveitarinnar Rósubúð á föstudagskvöldið síðasta. Frá þessu er sagt á vef Dagrenningar – www.123.is/dagrenning – og þar er einnig að finna margar myndir frá samkomunni. Á vef Dagrenningar segir að Björgunarsveitin vilji færa Kvenfélaginu bestu þakkir fyrir gjöfina og þann stuðning sem kvenfélagskonur hafa sýnt í gegnum árin.
Ljósmyndir af vefnum www.123.is/dagrenning.