Samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda eftir sveitarfélögum þann 1. júlí 2008 eru Strandamenn búsettir í héraðinu ennþá 748 talsins, eins og þeir voru um síðustu áramót. Hins vegar eru nokkrar breytingar á tölunum milli sveitarfélaganna fjögurra á Ströndum. Mest áberandi er að íbúum í Strandabyggð hefur fækkað um 14 frá síðustu áramótum og 22 frá 1. júlí 2007 eins og sjá má í töflu hér að neðan. Af öðrum stöðum á Vestfjörðum má nefna að áberandi fækkun er milli 2007 og 2008 í Ísafjarðarbæ, Bolungavík og Vesturbyggð, eins og í Strandabyggð, en hin ágætasta fjölgun í Reykhólahreppi.
|
1.jan.07 |
1.júl.07 |
1.jan.08 |
1.júl.08 |
Árneshreppur |
49 |
47 |
48 |
49 |
Kaldrananeshreppur |
101 |
109 |
103 |
106 |
Strandabyggð |
507 |
507 |
499 |
485 |
Bæjarhreppur |
100 |
104 |
98 |
108 |
Samtals |
757 |
767 |
748 |
748 |