Samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda 1. desember 2006 fækkar íbúum á Ströndum enn. Nú eru þeir 758 talsins, en voru 767 ári áður. Þótt að fækki um 9 íbúa á þessu ári er fækkunin breytileg milli svæða. Þannig fjölgar um 7 íbúa í Strandabyggð og íbúatalan í Árneshreppi stendur í stað. Í Kaldrananeshreppi fækkar hins vegar um 11 og í Bæjarhreppi um 5. Íbúar á Ströndum voru 792 fyrir tveimur árum.
Breytingar á íbúafjölda milli ára:
Íbúafjöldi |
1.des.05 |
1.des.06 |
Breyting |
50 |
50 |
0 |
|
|
112 |
101 |
-11 |
|
105 |
100 |
-5 |
|
500 |
507 |
+7 |
Samtals |
767 |
758 |
-9 |