22/11/2024

Sauðfjársetrið og fjölskyldan í Tröllatungu fengu menningarverðlaun

menningarverðlaun Lóan Strandabyggð Sauðfjársetrið Tröllatunga

Menningarverðlaun Strandabyggðar voru afhent á dögunum á bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík. Þetta var í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt og þetta árið Sauðfjársetur á Ströndum verðlaunin og farandgripinn Lóuna til varðveislu. Sauðfjársetrið hefur áður fengið menningarverðlaunin árið 2013 og sérstaka viðurkenningu í tengslum við þau árið 2012. Í umsögn kom fram að safnið fékk menningarverðlaunin vegna öflugrar aðkomu að menningarlífi í sveitarfélaginu, sýningahald, ótal menningartengdra viðburði og síðast en ekki síst fyrir nýsköpunarverkefnið Náttúrubarnaskólinn. Það verkefni sem er byggir á hugmyndafræði um náttúrutúlkun og menntatengda ferðaþjónustu hefur nú verið starfrækt frá því í fyrravor.

Í umsögn sagði einnig að Sauðfjársetur á Ströndum hafi verið sérstaklega öflugt síðasta árið og eftir því tekið víða. Safnið var til dæmis í hópi þeirra tíu framúrskarandi menningarverkefna á landsbyggðinni sem voru tilnefnd til Eyrarrósarinnar fyrr á árinu. Ennfremur að aðstandendur Sauðfjárseturs á Ströndum byggi á þeirri hugmyndafræði að söfn og menningarstofnanir eigi að vera virkir þátttakendur í því samfélagi sem þær eru hluti af og að í tilviki Sauðfjársetursins hafi heppnast afar vel að byggja á þeim grunni.

Við sama tækifæri fengu Sigríður Drífa Þórólfsdóttir og Birkir Þór Stefánsson bændur í Tröllatungu sérstaka viðurkenningu vegna menningarmála. Í umsögn segir að þau hafi með einstakri elju og myndarskap varðveitt menningarminjar gamla kirkjugarðsins í Tröllatungu. Starf þeirra við umhirðu og fegrun kirkjugarðsins hafi orðið til þess að hann er staðarprýði á Ströndum og Strandamönnum til sóma. Útimessa hefur verið í garðinum síðustu ár á Hamingjudögum sem hefur gefið öllum kost á að njóta svæðisins og eiga þar kyrrðar- og friðarstund.

Á myndinni hér að ofan eru mæðgurnar Ester Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri og Dagrún Ósk Jónsdóttir yfirnáttúrubarn sem tóku við verðlaununum fyrir Sauðfjársetrið, og fjölskyldan í Tröllatungu, Sigríður Drífa, Árný Helga, Stefán og Birkir Þór Stefánsson með verðlaunin sín.

IMG_4932 (2)

Salbjörg Engilbertsdóttir afhenti verðlaunin fyrir hönd Strandabyggðar – ljósm. Jón Jónsson