Seinni umferð Bikarkeppni HSS í knattspyrnu verður haldin laugardaginn 19. ágúst og leikið verður á Drangsnesi. Mótið hefst kl. 13:00. Lið Sundfélagsins Grettis í Bjarnarfirði er stigahæst eftir fyrri umferð, en Geislinn á Hólmavík, Neisti á Drangsnesi og Stormsveitin Hvöt eru skammt undan og eiga ágæta möguleika. Strandamenn eru hvattir til að mæta og hvetja sitt lið.
Staðan eftir fyrri umferð:
Sæti Lið Markatala Stig
1 Grettir 6-4 7
2 Geislinn 6-4 4
3 Neisti 3-5 3
4 St. Hvöt 4-6 2