Það var kannski ekkert sérstaklega vorlegt á árlegum vordegi Grunnskólans á Hólmavík, en nemendur og starfsfólks skólans létu það ekkert á sig fá. Börnin á Leikskólanum Lækjarbrekku komu í heimsókn og allir skemmtu sér hið besta við leiki, kraftakeppni, pulsuát og fleira. Spákona var við störf í einni stofu skólans og var löng biðröð þar til að fá spádóm. Sólin lét hins vegar bara sjá sig í horninu á skilti nokkru sem hægt var að setja andlitið í gat á, gestum og gangandi til skemmtunar. Ljósmyndirnar af vordeginum tók Jón Jónsson.