Þeir sem hafa atvinnu af snjómokstri munu hafa í nógu að snúast þessa dagana. Haft hefur verið á orði að snjór hér á Hólmavík sé jafnvel með því mesta sem gerst hefur síðan 1995. Veðrið hefur raunar verið stillt síðustu tvo dagana og tækifæri gefist til að losa sig við uppsafnaðan snjó.
Í dag voru starfsmenn Hólmadrangs við mokstur af þaki fyrirtækisins þegar fréttaritari smellti af meðfylgjandi mynd. Einnig birtist hér mynd sem tekin var þegar Þórður Sverrisson (Ninni) var að moka Borgabrautina í fyrradag og fleiri stemmningsmyndir frá vetrinum á Hólmavík.