Í vetur tóku nokkur ferðaþjónustufyrirtæki og einstaklingar á Ströndum þátt í námskeiði á vegum Útflutningsráðs sem heitir Hagvöxtur á heimaslóð. Í framhaldi af því hafa þátttakendurnir ákveðið að efna til öflugrar markaðsvinnu og tengist fyrst og fremst spurningunni um það hvernig Strandamenn geti undirbúið sig sem best fyrir opnun vegarins um Arnkötludal, sem er áætlað árið 2008. Að sögn Sigurðar Atlasonar eins forsvarsmanna hópsins ætlar hópurinn að nýta sameiginlega alla ráðgjafatíma sem voru innifaldir í námskeiðinu og blása til fundarhrinu sem hefst um miðjan september n.k.
HH-Strandir hópurinn eins og hann kýs að nefna sig mun bjóða öllum fyrirtækjum og sveitarfélögum á Ströndum að taka þátt í vinnunni ásamt fyrirtækjum í Reykhólahreppi og jafnvel víðar.