Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 2006 verður haldinn í Félagsheimilinu á Patreksfirði um komandi helgi, laugardaginn 13. maí og hefst fundurinn kl. 12.00. Í fréttatilkynningu kemur fram að fundurinn er opinn öllum greiðandi sjóðfélögum og lífeyrisþegum. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og mæta á ársfund sjóðsins, en eru beðnir að staðfesta þátttöku sína við skrifstofu sjóðsins í síðasta lagi föstudaginn 12. maí 2006. Heimasíða Lífeyrissjóðs Vestfirðinga er á slóðinni www.lvest.is, netfangið er afgr@lvest.is og s. 456-4233.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi samkvæmt fréttatilkynningu:
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings 2005
3. Tryggingafræðileg úttekt
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Stjórnarkjör
6. Laun stjórnarmanna
7. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
8. Hækkun réttinda
9. Önnur mál