Það var góð stemmning og hátíðarbragur við Grunnskólann á Hólmavík í dag þegar kveikt var á jólatré við skólann. Tréð höfðu Lionsmenn á Hólmavík sótt í skóginn til Jóns Guðjónssonar á Laugabóli við Djúp, ásamt fleiri trjám sem standa nú við leikskólann Lækjarbrekku, Hólmavíkurkirkju og Kaupfélag Steingrímsfjarðar. Kakó og piparkökur voru á boðstólum og allir bekkir skólans skemmtu með söng.