Sparisjóðsmót í skíðagöngu verður haldið í Selárdal sunnudaginn 2. apríl og hefst mótið kl. 14.00. Gengið er með frjálsri aðferð. Þrír fyrstu í hverjum flokki fá verðlaunapening fyrir sæti og aðrir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna. Mótið er öllum opið. Eftir gönguna verða seldar veitingar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Stelpur 6 ára og y. 1 km Strákar 6 ára og yngri 1 km
Stelpur 7-8 ára 1 km Strákar 7-8 ára 1 km
Stelpur 9-10 ára 2 km Strákar 9-10 ára 2 km
Stelpur 11-12 ára 2,5 km Strákar 11-12 ára 2,5 km
Stelpur 13- 14 ára 3,5 km Strákar 13-14 ára 5 km
Stelpur 15-16 ára 5 km Strákar 15-16 ára 5 km
Konur 17-34 ára 5 km Karlar 17-34 ára 10 km
Konur 35-49 ára 5 km Karlar 35-49 ára 10 km
Konur 50-64 ára 5 km Karlar 50-64 ára 10 km
Konur 65 ára og e. 2,5 km Karlar 65 ára og e. 5 km
.