Það er ekki hægt að segja annað en að áskorun stjórnanda tippleiksins á strandir.saudfjarsetur.is til keppenda um að girða sig í brók og fara að hala inn stig hafi þrælvirkað, a.m.k. nú um helgina. Þeir Halldór Logi Friðgeirsson á Drangsnesi og Jón Jónsson á Kirkjubóli gerðu sér lítið fyrir og gerðu jafntefli 9-9. Það voru Hollendingar sem endanlega réðu úrslitum með því að sigra Tékka auðveldlega og Strandamenn skildu þar af leiðandi jafnir. Þeir Jón og Halldór þurfa því að eigast við í þriðja skipti á næstu helgi, en þá verður seðillinn á ný úr ensku knattspyrnunni. Umsagnir og spár þeirra fyrir helgina má sjá með því að smella hér, en úrslitin og árangur keppenda í leiknum hingað til sjást hér neðar:
LEIKIR |
ÚRSLIT |
JÓN |
HALLDÓR |
1. Króatía – Svíþjóð |
1 |
1 |
1 |
2. Danmörk – Grikkland |
1 |
1 |
1 |
3. Tékkland – Holland |
2 |
1 |
X |
4. Sviss – Frakkland |
X |
2 |
2 |
5. Belgía – Spánn |
2 |
2 |
2 |
6. England – Austurríki |
1 |
1 |
1 |
7. Ítalía – Slóvenía |
1 |
1 |
1 |
8. Finnland – Rúmenía |
2 |
2 |
X |
9. Búlgaría – Ungverjaland |
1 |
X |
1 |
10. Litháen – Serbía/Svartfj. |
2 |
2 |
2 |
11. Kýpur – Írland |
2 |
2 |
2 |
12. Skotland – Hvíta-Rússland |
2 |
X |
X |
13. Slóvakía – Eistland |
1 |
1 |
1 |
|
|
9 réttir |
9 réttir |
Árangur giskara hingað til:
Jón Jónsson – 2 sigrar
Þröstur Áskelsson – 0 sigrar (3 jafnt.)
Halldór Logi Friðgeirsson – 0 sigrar (2 jafnt.)
Björn Fannar Hjálmarsson – 0 sigrar