Hagstofa Íslands og Þjóðskrá hafa birt tölur um fjölda kjósenda í komandi kosningum um sameiningu sveitarfélaga. 573 manns eru á kjörskrá í hreppunum fimm sem teljast til Stranda. Þar af eru 74 í Bæjarhreppi, en þar verður kosið um hvort hreppurinn skuli sameinast Húnaþingi vestra. Ef eitthvað er að marka könnunina sem verið hefur hér á strandir.saudfjarsetur.is undanfarna daga, virðast litlar líkur til þess að Strandamenn samþykki sameininguna, ef frá eru taldir íbúar Broddaneshrepps. Gjalda skal varhuga við því að taka of mikið mark á vefkönnunum, þær eru til gamans gerðar. Hér að neðan er hægt að sjá kynjaskiptingu kjósenda á Ströndum ásamt niðurstöðunni í könnuninni.
Kjósendur á kjörskrá fyrir kosningar um sameiningu sveitarfélaga |
|||||
|
Konur |
Karlar |
Samtals |
Íbúafjöldi 1. Des. 2004 |
|
Broddaneshreppur |
19 |
28 |
47 |
53 |
|
Hólmavíkurhreppur |
137 |
181 |
318 |
462 |
|
Kaldrananeshreppur |
43 |
45 |
88 |
117 |
|
Árneshreppur |
17 |
29 |
46 |
57 |
|
Samtals á kjörskrá |
216 |
283 |
499 |
|
689 |
Bæjarhreppur |
31 |
43 |
74 |
103 |
|
Húnaþing vestra |
431 |
440 |
871 |
1175 |
|
Samtals á kjörskrá |
462 |
483 |
945 |
|
1278 |