25/04/2024

Yfirlit yfir veðrið í júní

Gjögurbryggja - ljósm. JJAð venju birtum við á strandir.saudfjarsetur.is hér yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík í Árneshreppi, sem Jón G. Guðjónsson veðurathugunarmaður hefur tekið saman. Mánuðurinn var hægviðrasamur í heild, þokuloft var oft. Miklar hitasveiflur voru yfir daginn og á nóttinni eða að morgni til. Fjöll voru talin fyrst auð í Árneshreppi þann 25. júní, en snjór í fjöllum aftur þann 28. og 29. Bændur búnir að bera tilbúin áburð á tún að mestu í fyrstu viku mánaðar og er það fyrr en undanfarin ár.
 

Yfirlit eftir dögum í júní:

1.-2.: Breytilegar vindáttir, gola eða kul, þurrt í veðri, hiti 8 til 15 stig.
3.-5.: Norðvestan eða norðan, gola eða stinníngsgola, súld eða rigning, hiti 5 til 10 stig.
6.-7.: Suðaustan síðan breytilegar vindáttir, logn, kul eða gola, úrkomulítið, hiti 6 til 16 stig.
8.-10.: Mest norðan, gola eða stinníngsgola, þokuloft með súld eða rigningu, hiti 5 til 8 stig.
11.-15.: Hafáttir eða breytilegar vindáttir, kul eða gola, þokuloft með smá súld með köflum, hiti 4 til 14 stig.
16.-17.: Norðaustan stinníngskaldi eða allhvass síðan stinníngsgola þann 17., súld þann 16., hiti 5 til 8 stig.
18.-27.: Hafáttir eða breytilegar, kul eða gola, en hvessti upp af norðvestri um kvöldið 27., að mestu þurrt, hiti 4 til 12 stig.
28.-30.: Norðan allhvass, síðan stinníngskaldi og kaldi, rigning og súld, hiti 4 til 6 stig.

Úrkoman mældist 40,6 mm.
Þurrir dagar í mánuðinum voru 14.
Mestur hiti mældist 15,6 stig þann 6. júní.
Minnstur hiti mældist 2 stig að morgni 23. júní.
Meðalhiti við jörð: 3,96 stig (í fyrra í júní var meðalhiti 5,09 stig).
Sjóveður: Mjög gott, nema þann 16. og fram á 17. og 28.-30. júní.

Tekið saman af Jóni G. Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu-Ávík.