25/04/2024

Yfir 300 umsóknir til mótvægisaðgerða

Yfir 300 umsóknir bárust um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu sem eru hluti af mótvægisaðgerðum á sviði ferðaþjónustu. Þetta kemur fram á heimasíðu Byggðastofnunar. Í janúar síðast liðnum var auglýst eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á þeim svæðum sem orðið hafa fyrir samdrætti vegna skerðingar á aflaheimildum, en ríkisstjórnin ákvað að verja til þessara verkefna alls 160 milljónum á tveimur árum. Umsóknarfrestur rann út þann 5. febrúar síðastliðinn. 

Alls bárust 303 umsóknir að fjárhæð samtals um 1,8 milljarðar, þannig að ljóst er að áhuginn er gríðarlega mikill og margvíslegar hugmyndir til staðar. Af þessum umsóknum voru 87 frá Vestfjörðum.

Byggðastofnun vinnur nú að úrvinnslu umsóknanna, en sérstaklega er litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og einnig þess hversu hratt þau geta orðið til. Iðnaðarráðherra mun síðan taka ákvörðun um afgreiðslu umsóknanna.