28/03/2024

Vortónleikar Kórs Átthagafélagsins

Vortónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna verða haldnir sunnudaginn 21. maí í Árbæjarkirkju kl. 17:00. Þar syngur kórinn undir stjórn Krisztinu Szklenár, en undirleikari er Judith Þorbergsson. Gestakór er Kirkjukór Kópavogskirkju. Kórinn hefur nýlega gefið út geisladisk með nafnið Ymur Íslands lag og framundan er söngferð til Kanada.

Kórinn hefur nýlega gefið út geisladisk sem ber nafnið “Ymur Íslands lag”. Þar syngur kórinn undir stjórn Kriztinu Szklenár ásamt Gunnari Guðbjörnssyni og Guðrúnu Gunnarsdóttur auk þess sem kórfélagarnir Aðalheiður Magnúsdóttir og Grétar Jónsson syngja einsöng.

Um undirleik sjá Judith Þorbergsson og Gunnar Gunnarsson á píanó, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Tatu Kantomaa á harmoniku og Tómas R. Einarsson á kontrabassa. Á disknum eru m.a. lög eftir Sigfús Halldórsson og Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson auk margra annara. Fermata gefur diskinn út og upptöku stjórnaði Halldór Víkingsson. Diskurinn kostar kr. 2000,- og verður seldur á tónleikunum auk þess sem hægt er að nálgast hann hjá kórfélögum.
 
Kórinn heldur síðan í söngferð til Kanada 12. júní n.k. Þar mun kórinn m.a. halda tónleika í Gimli og syngja á 17. júní samkomu í Winnipeg auk þess sem sungið verður við ýmis önnur tækifæri Kórinn skoðar sig síðan um á þesssum slóðum og heldur heim 19.-20. júní.

Miðaverð á vortónleika kórsins á sunnudaginn er 1.800,-kr. fyrir fullorðna, frítt er fyrir börn 14 ára og yngri.

Ljósm. frá Kór Átthagafélags Strandamanna