23/04/2024

Vorfiðringur á föstudag

3Klassískar og 2Prúðbúnir, leggja land undir fót 22. júlí með Vorfiðring í farteskinu. Þau bjóða upp á blandaða og skemmtilega dagskrá og fyrir utan gömlu góðu sveitarómantíkina flytja þau seiðandi suðræna tangóa og dillandi ítalska valsa, auk þess sem flugeldum verður skotið á loft. Dagskráin verður flutt í Hólmavíkurkirkju föstudagskvöldið 22. júlí kl. 20. Í söngflokknum 3Klassískar eru þær Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir söngkonur og 2Prúðbúnir eru þeir Bjarni Þór Jónatanssson pianóleikari og Gunnar Hrafnsson bassaleikari.

Gaman er að geta þess að 2Klassískar, þær Björk og Jóhanna, eiga ættir sínar að rekja til Stranda, báðar sannar Tröllatungumeyjar. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir.