25/04/2024

Viðræður við Jón Eðvald Halldórsson um stöðu kaupfélagsstjóra

Jón EðvaldÍ nóvember síðastliðnum auglýsti stjórn Kaupfélags Steingrímsfjarðar (KSH) eftir nýjum kaupfélagsstjóra þar sem fyrir liggur að núverandi kaupfélagsstjóri, Jón E. Alfreðsson, mun láta af störfum með vorinu eftir 41 ára farsælan starfsferil sem kaupfélagsstjóri. Í fréttatilkynningu frá KSH kemur fram að mikill fjöldi umsókna barst og hafa undanfarnir tveir mánuðir farið í úrvinnslu umsókna og viðtöl í samvinnu við Hagvang, ráðgjafar- og ráðningarþjónustu. Stjórn KSH hefur nú ákveðið að ganga til viðræðna við Jón Eðvald Halldórsson og verður leitast við að ganga frá ráðningu sem fyrst.

Jón er fæddur og uppalinn Strandamaður og bjó lengi vel á Drangsnesi. Árið 2005 útskrifaðist Jón frá Háskólanum á Akureyri með B.Sc gráðu í sjávarútvegsfræðum viðskiptatengt  og mun nú í vor ljúka meistaranámi í sjávarútvegsfræðum frá sama skóla. Undanfarin 5 ár hefur Jón átt fasta búsetu á Akureyri og á hann sambýliskonu og tvö börn. Stjórn KSH vonast eftir góðu samstarfi við Jón Eðvald, segir í fréttatilkynningunni.