18/04/2024

Vestfirsk ævintýrahandbók fyrir fjölskyldur

Markaðsstofa Vestfjarða, Vaxtasamningur Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hafa tekið höndum saman um að gefa út Ævintýrahandbók fyrir fjölskylduna um Vestfirði. Þar verður að finna spennandi og skemmtileg ævintýri sem fjölskyldur geta upplifað saman á Vestfjörðum í sumar. Markmiðið er að hjálpa fjölskyldum að finna sér spennandi verkefni og lenda í litlum ævintýrum á Vestfjörðum.

Núna stendur efnisöflun yfir og allir þeir sem hafa eitthvað skemmtilegt uppá að bjóða fyrir börn og fjölskyldur geta snúið sér til aðila í ritnefnd. Ef allir leggja hönd á plóginn verður verkið að veruleika. Í ritnefnd eru:

Jón Páll hjá Markaðsstofu Vestfjarða: jonpall@westfjords.is
Ásgerður hjá AtVest á Ísafirði: asgerdur@atvest.is
Viktoría hjá AtVest á Hólmavík: viktoria@atvest.is
Guðrún hjá AtVest á Patreksfirði: gudrun@atvest.is