25/04/2024

Verðlaun afhent í Nýsköpunarkeppni Vestfjarða

atvestVaxtarsamningur Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða héldu nýlega nýsköpunarkeppni á Vestfjörðum. Fjórtán nýsköpunarhugmyndir bárust í keppnina og voru þær afar fjölbreyttar. Keppnin var liður í því að auka og styðja við nýsköpun á svæðinu enda er nýsköpun ein af forsendum vaxtar. Í dag var þeim hugmyndum sem sköruðu fram úr veitt verðlaun í húsnæði Háskólaseturs Vestfjarða. Fyrirtækið Kerecis ehf bar sigur úr býtum í keppninni með hugmynd að vinnslu á lækningarvörum úr fiskipróteinum og fiskroði sem fellur til á svæðinu.

Hugmyndirnar sem bárust í keppnina voru eftirfarandi:

Fiskrækt og seiðaeldi
Vefsíðuvakinn – hugbúnaðargerð
Artic Circle – vínframleiðsla úr bláberjum
Gyða – rafvæddur farþegabátur
Kerecis – lækningavörur úr fiskroði
Fossadalur – fluguveiðihjól og nýr bremsubúnaður fyrir veiðihjól
Fasanarækt
Straumhjól – hverfill fyrir virkjun sjávarstrauma
Lífvinnslan – Vinnsla á kítíni úr rækjuskel
Fittings – fittings unnið úr stál rörum
Sjúkralyfta – bílalyftubúnaður fyrir fatlaða
Tankurinn – hljóðver
Flakavinnsla – nýjar vinnslu og meðhöndlunaraðferðir fyrir fiskvinnslu
Ferðaþjónustan Arnardal – Til móts við fornan sið